Það er sárt að horfa á eftir ungri konu í blóma lífsins kveðja þessa jarðvist Ég man þegar ég sá þig fyrst 2ja ára með foreldrum þínum koma til okkar og spyrja hvort þú mættir leika við Emilíu en frá þeim degi voru þið Emilia mjög góðar vinkonur sem brölluðu margt en það sem er minnisstæðast þegar þið ákváðu mjög litlar að fara í heimsókn til ömmu þinnar og gengu þið tvær ungar stúlkur alla leið frá Trönuhjalla að Hamraborginni sem er þo nokkur leið fyrir litlar stúlkur og fannst ykkur þetta svo eðlilegt og sjálfsagt að skreppa til ömmu í heimsókn. Eins rifjast upp þegar þið voruð samferða í skólann fyrstu árin og mjög oft seinar í tíma þar sem alltaf þurfti að stoppa,skoða og tala. Svo kom flutningurinn til Noregs um 9.ára aldurinn og mikill var söknuðurinn hjá ykkur vinkonum, en einu sinni vinkonur allraf vinkonur. Mjög sterkt og heilt samband . Það rifjast líka upp góðar minningar þegar þú komst með okkur í útilegu eitt árið þegar þú varst stödd hér á landi, ásamt öllum góðum stundum með okkur. Elsku fjölskylda missir ykkar er mikill og óbærilegur, megi minning elsku Maríu verða ykkar styrkur. Sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur og þökkum fyrir stundirnar sem við fengum að njóta með elsku Maríu Ösp okkar. Dóra og Þorri
Innilega samúð elsku fjölskylda, mikill er missir ykkar. Ég hitti Maríu fyrst 9 ára, kampakáta og spennta yfir að fá að hjálpa til við að passa Sóleyju mína ársgamla og hún nýfarin að ganga. Þið mæðgur allar hringsnerust í kringum hana og umvöfðuð gleði og kærleik í 3 vikur áður en þið hélduð til Noregs.
Takk for flotte minner sammen med deg. Takk for ditt gode humør, varme smil og gode vennskap. Hvil i fred Maria. Vi savner deg. Hilsen fra Kristin, Natalia, Fredrik, Camilla, Anette og Lise